Athyglisbrestur og nám
|
|
ADHD samtökin hafa gefíð út smárit fyrir kennara til leiðbeiningar um kennslu nemenda með ADHD.
Kennarar geta nálgast þetta smárit hjá ADHD samtökunum.
Auk þess hafa ADHD samtökin gefið út bækur sem geta nýst kennurum vel. Má þar m.a. nefna bókina "Þroski og hegðunarvandi barna" eftir Málfríði Lorange og Matthías Kristiansen og Ofvirknibókin eftir Rögnu Freyju Karlsdóttur. Hægt er að skoða hvaða bækur eru til sölu hjá ADHD samtökunum hér á vefsíðunni. |
Margar góðar greinar er að finna undir greinasafni, sem geta nýst kennurum og nemendum.
Hér eru nokkrar góðar vefslóðir:
LESVÉL. Á ofangreindri slóð er lesvél. Lesvélin byggir á nýrri tækni sem auðveldar aðgengi fólks með lestrarerfiðleika að rituðu mál á netinu. Tæknin sem hér um ræðir er upplestrarþjónusta, sem notar miðlæga lesvél til að lesa hvaða texta sem er beint af netinu. Þessi íslenska lesvél hefur fengið nafnið Ragga. Menntamálaráðuneytið styrkti gerð Röggu en það er fyrirtækið Hexia sem sá um skipulag og framkvæmd í samvinnu við Háskóla Íslands, Símann og Trackwell. Aðgangur að lesvélinni er öllum opinn.
Vefurinn, http://lesum.khi.is, er liður í stærra verkefni sem nú er unnið að í menntamálaráðuneytinu og er markmið þess að auka þjónustu við nemendur með lestrarerfiðleika, foreldra og kennara. Það er Kennaraháskóli Íslands sem hefur veg og vanda af vefnum. Þar má m.a. finna ýmsar upplýsingar um lestrarerfiðleika og efni tengt læsi auk þess sem nemendur, foreldrar og kennarar geta sent inn fyrirspurnir.